Beint í efni

Una Torfa í Jólafötunum á Gamla Bauk

7–7 desember 2025

Una Torfa fer um landið og kíkir á nokkra vel valda staði!

Á notalegum tónleikum mun Una flytja blöndu af sínum eigin lögum og jólalögum sem henni þykir vænt um. Hafsteinn Þráinsson verður með Unu á sviðinu og leikur á gítar.

Jólatónleikar Unu Torfa

Í jólastressinu er ekkert betra en að gefa sér góða kvöldstund til þess að slaka á og rifja upp friðinn sem gleymist oft í undirbúningi jólanna. Una ætlar að skapa friðsælt og ljúft andrúmsloft eins og henni einni er lagið.

Ímyndaðu þér heitt súkkkulaði, heitt súkkulaði með eins miklum rjóma og þig lystir, heitt súkkulaði og tvö piparkökuhjörtu á undirskál. Finnurðu hlýjuna?

Svona mun þér líða þegar þú kemur að sjá Unu Torfa í jólafötunum.