Beint í efni

Hljómsveitin LÓN - "Fimm mínútur í Jól"

12–12 desember 2025

Valdimar Guðmundsson syngur hugljúf jólalög í nýjum útsetningum með hljómsveit sinni, LÓN. Sérstakur gestur er RAKEL.

Fimm mínútur í Jól

Hljómsveitin LÓN með söngvarann Valdimar í broddi fylkingar flytur óvæntar útgáfur af þekktum jólaperlum. Sérstakur gestur er söngkonan RAKEL.

Jólaplatan 5 mínútur í jól kom út árið 2022 og hefur síðan þá fest sig í sessi sem ómissandi hluti af hljóðmynd aðventunnar. Nú gefst fólki tækifæri til að heyra plötuna flutta á svið í notalegu umhverfi víðs vegar um landið.

Húsið opnar kl. 20:00 og tónleikarnir hefjast kl. 20:30.